Framrúðuskipti

    Sprungin eða skemmd framrúða? Fagleg bílrúðuskipti fyrir allar gerðir ökutækja. Bílar sem koma inn að morgni eru tilbúnir samdægurs frá kl. 13:00.

    Fagfólk okkar að setja upp nýja framrúðu í vinnustofunni
    ~5 klst.
    Viðgerðartími
    Samdægurs
    Oft tilbúið sama dag
    Flestar bíltegundir
    Rétt rúða fyrir bílinn
    Ábyrgð á vinnu
    Fagleg ísetning

    Framrúðuskipti gerð rétt

    Tæknimenn okkar að setja nýja framrúðu í hvítan bíl í vinnustofunni

    Við skiptum um sprungnar og skemmdar framrúður þegar ekki er lengur hægt eða öruggt að gera við skemmdina.

    Við finnum rétta framrúðu fyrir bílinn út frá tegund, árgerð og búnaði og sjáum um alla ísetningu frá upphafi til enda. Gamla rúðan er fjarlægð, yfirborðið undirbúið og nýja rúðan sett í samkvæmt réttum verklagsreglum.

    Bílar sem koma inn að morgni eru oftast tilbúnir til afhendingar sama dag frá kl. 13:00. Við vinnum með flestar bíltegundir og höfum meira en 25 ára reynslu af rúðuskiptum á Reykjanesinu.

    Ferlið í fjórum skrefum

    1. 1

      Tilkynna tjón

      Tilkynntu tjónið til tryggingafélagsins þíns 

      Sjá tryggingarsíðu
    2. 2

      Bóka tíma

      Bókaðu tíma hér.

      Bóka tíma
    3. 3

      Mæta með bílinn

      Þú kemur með bílinn um morguninn til okkar í Grófinni 15c í Keflavík.

    4. 4

      Sækja bílinn

      Þú kemur og sækir bílinn eftir kl 13:00

    Afhending um morguninn

    Mættu að morgni

    Þú kemur með bílinn til okkar í Grófinni 15c í Keflavík.

    Sækja bílinn

    Frá kl. 13:00

    Bíllinn tilbúinn sama dag ef mætt er að morgni.

    Hentar ekki að mæta að morgni? Hægt er að semja um aðrar tímasetningar. Hafðu samband og finnum lausn sem hentar.

    Hafa samband · 891-9131

    Kvörðun myndavéla og skynjara

    Kvörðunartæki á hjóli bíls við kvörðun framrúðu

    Margar nýrri framrúður eru með myndavélum og skynjurum sem tengjast öryggis- og aðstoðarkerfum bílsins. Myndavélin les meðal annars akreinar, vegmerkingar og umhverfi bílsins og miðlar upplýsingum til kerfa sem aðstoða ökumann við aksturinn.

    Þegar skipt er um framrúðu getur staða myndavélarinnar breyst, jafnvel þótt aðeins sé um mjög lítið frávik að ræða. Því þarf að kvarða búnaðinn að nýju svo tryggt sé að kerfin lesi umhverfið rétt og virki eins og framleiðandi gerir ráð fyrir.

    Við sjáum um kvörðun eftir framrúðuskipti og tryggjum að myndavélar og skynjarar séu rétt stillt. Þannig geta aðstoðar- og öryggiskerfi bílsins starfað rétt og örugglega eftir skiptin.

    Algengar spurningar

    Finnurðu ekki svarið?

    Við aðstoðum þig í síma eða á staðnum.

    Þarftu nýja framrúðu?

    Grófin 15c, Keflavík · Mán–fim 8:00–17:00 · Fös 8:00–13:00

    HringjaBóka tíma