Persónuverndarstefna
Hér útskýrum við hvaða persónuupplýsingar við vinnum, í hvaða tilgangi og hver réttindi þín eru samkvæmt persónuverndarlögum (GDPR).
Síðast uppfært: ágúst 2026
Ábyrgðaraðili
Bílrúðuþjónustan ehf. Kennitala: 561224-1100 Grófin 15c, 230 Keflavík Sími: 891-9131 Netfang: bilruduthjonustan@simnet.is
Bílrúðuþjónustan ehf. er ábyrgðaraðili að vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem lýst er í þessari stefnu.
Hvaða upplýsingar við vinnum
Bókanir og fyrirspurnir: nafn, símanúmer, netfang, bílnúmer, tegund og árgerð bíls, valin þjónusta og tími, ásamt athugasemdum sem þú skrifar sjálf/ur.
Vefmælingar (aðeins með samþykki): tæknilegar upplýsingar á borð við IP-tölu (nafnlausa), tegund vafra og tækis, hvaða síður eru heimsóttar og hversu lengi.
Við söfnum ekki viðkvæmum persónuupplýsingum og biðjum þig um að setja slíkar upplýsingar ekki í athugasemdareiti.
Tilgangur og lagagrundvöllur
Að taka við og framkvæma bókanir og hafa samband við þig vegna þeirra – grundvöllur: framkvæmd samnings.
Að svara fyrirspurnum sem þú sendir okkur – grundvöllur: lögmætir hagsmunir af því að veita þjónustu.
Vefmælingar til að bæta vefinn – grundvöllur: samþykki þitt, sem þú getur afturkallað hvenær sem er.
Reikningagerð og bókhald – grundvöllur: lagaskylda.
Geymslutími
Bókanir og samskiptaupplýsingar eru geymdar í 12 mánuði frá þjónustudegi og er þá eytt.
Gögn sem falla undir bókhaldslög (reikningar og fylgiskjöl) eru geymd eins lengi og lög kveða á um.
Upplýsingar úr vefmælingum eru geymdar að hámarki 14 mánuði hjá Google Analytics.
Miðlun og vinnsluaðilar
Við seljum aldrei persónuupplýsingar. Upplýsingum er aðeins miðlað til aðila sem aðstoða okkur við reksturinn:
• Hýsingar- og gagnagrunnsþjónusta fyrir vefinn og bókunarkerfið • Þjónusta sem sendir staðfestingarpósta vegna bókana • Google Analytics vegna vefmælinga (aðeins með samþykki) • Google Ads vegna mæling á árangri Google-auglýsinga (aðeins með samþykki) • Meta Pixel vegna mælinga á árangri auglýsinga og endurmarkaðssetningu (aðeins með samþykki) • Tryggingafélag þitt, ef þú óskar eftir að við gerum upp beint við það
Ef gögn eru flutt út fyrir Evrópska efnahagssvæðið byggist sá flutningur á stöðluðum samningsákvæðum ESB.
Öryggi
Vefurinn notar dulkóðaða tengingu (HTTPS) og aðgangur að bókanaupplýsingum er takmarkaður við starfsfólk sem þarf á þeim að halda.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, láta leiðrétta þær, láta eyða þeim, takmarka eða andmæla vinnslu, fá gögnin afhent á tölvutæku formi og afturkalla samþykki fyrir vefmælingum.
Til að nýta réttindi þín, sendu póst á bilruduthjonustan@simnet.is. Við svörum að jafnaði innan eins mánaðar.
Ef þú ert ósátt/ur við meðferð okkar á persónuupplýsingum getur þú lagt fram kvörtun hjá Persónuvernd, personuvernd.is.
Vafrakökur
Nánari upplýsingar um vafrakökur og hvernig þú breytir samþykki þínu má finna í vafrakökustefnu okkar.